Fréttir

Vestmannaeyingar koma á Krókinn

Um liðna helgi tryggði kvennalið Tindastóls í knattspyrnu sig inn í 16 liða úrslit Mjólkurbikars kvenna með 3-0 sigri á liði ÍR. Í dag var svo dregið í keppninni og góðu fréttirnar eru þær að Stólastúlkur fá heimaleik en verri fréttirnar eru að liðið mætir Bestu deildar liði ÍBV en liðin mættust í Lengjubikarnum fyrr í vetur og þá fór illa.
Meira

Framkvæmdir að hefjast á Skagavegi

Íbúar á vestanverðum Skaga kættust nú í morgun þegar verktakar mættu með vélar sínar en það styttist í að framkvæmdir hefjist við Skagaveg. Vegagerðin samdi við Mjölni Selfossi um að annast verkið en Páll Sighvatsson hjá Vegagerðinni segir að þeir hafi í dag verið að merkja vinnusvæðið og koma með tæki sín.
Meira

Vísindadagur á Skagaströnd

Fimmtudaginn 16. apríl s.l. var haldinn vísindadagur fyrir nemendur í 10. bekk Höfðaskóla á Skagaströnd þar sem áhersla var lögð á að kynna þeim fjölbreytt svið vísinda og tækni með fræðslu og verklegum æfingum.
Meira

Stefnt að tjaldsvæði við Borgargerði á Sauðárkróki

Um langt árabil hafa Króksarar leitað að hentugum stað fyrir tjaldsvæði bæjarins en lengi hefur legið fyrir að tjaldsvæðið á Flæðunum, milli sundlaugar og Safnahússins, yrði að víkja. Unnið var skipulag að tjaldsvæði í Sauðárgili en eftir mótmæli íbúa í nálægð við svæðið var ákveðið að hætta við það. Nú síðustu misserin hefur valið staðið á milli tjaldsvæðis á Nöfum og við Borgargerði og á síðasta fundi sveitarstjórnar var samþykkt að auglýsa skipulagslýsingu fyrir Tjaldsvæði við Borgargerði á Sauðárkróki.
Meira

Emma Katrín og Lena Rut Íslandsmeistarar í tvíliðaleik

Meistaramót Íslands í badminton fór fram um helgina í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Badmintondeild Tindastóls sendi tvo keppendur til leiks; systurnar Júlíu Marín og Emmu Katrínu Helgadætur. Bestum árangri náði Emma í tvíliðaleik kvenna en hún og Lena Rut úr BH vörðu Íslandsmeistaratitilinn.
Meira

Rakel Birta náði bestum árangri PKS-félaga á Íslandsmótinu í pílu

Síðastliðinn laugardag fór fram Íslandsmeistaramót ungmenna í pílukasti á Bullseye í Reykjavík en 72 keppendur mættu til leiks. Tólf krakkar frá Pílukastfélagi Skagafjarðar (PKS) tóku þátt og stóðu þau sig öll frábærlega og komu heim með fern verðlaun, eina silfurmedalíu og þrjár bronsmedalíur.
Meira

Viljum við að fatlað fólk komist um á eigin forsendum? | Þuríður Harpa og Harpa Cilia skrifa

Frá því 2001 hafa sveitarfélögin átt kost á veglegum styrkjum frá ríkinu til úrbóta í aðgengismálum. Þrátt fyrir háværa umræðu um vanfjármögnun í málaflokki fatlaðs fólks fóru tæpar 120 milljónir króna forgörðum á árunum 2021-2024. Eftirspurnin eftir styrkjunum var of lítil.
Meira

Yfir milljón á dag – við getum gert betur | Jódís Helga og Elfa Björk skrifa

Fjárhagur sveitarfélags er ekki bara samansafn talna í ársreikningi. Hann er eign íbúanna og þannig grunnurinn að allri þjónustu sveitarfélagsins, allt frá leikskólum og grunnskólum til innviðauppbyggingar og velferðarþjónustu. Sveitarfélagið innheimtir útsvar, fasteignaskatt og ýmis önnur gjöld, og ráðstafar þeim fjármunum svo til verkefna í sveitarfélaginu. Við þurfum að tryggja að umræða um fjármál sveitarfélagsins sé gagnsæ og byggð á staðreyndum. Íbúarnir eiga rétt á því að vita hvernig fjármunir eru nýttir og hvernig þeim er forgangsraðað. Undanfarið hefur umræðan um fjármál sveitarfélagsins verið nokkuð hávær. Í slíkri umræðu skiptir máli að rétt sé farið með staðreyndir. Ársreikningur ársins 2025 var samþykktur á fundi sveitastjórnar 22. apríl síðastliðinn og því hægt að byggja á þeim gögnum.
Meira

Tindastólskonur höfðu sigur í Mjólkurbikarnum

Stúlkurnar úr ÍR. mættu á Sauðárkróksvöll á sunnudaginn til að spila við Tindastól í Mjólkurbikarnum. Eins og við vitum er talsverð breyting á leikmannahóp Tindastóls. Margar uppaldar stelpur að fá tækifæri sem er auðvitað mjög jákvætt. Bryndís Rut er svolítið farin að virka eins og amma í þessu liði, með jákvæðum formerkjum auðvitað.
Meira

Hver verður sýslumaður Íslands?

Sjö sóttu um nýtt embætti sýslumanns Íslands sem verður stofnað í byrjun árs 2027. Meðal umsækjenda eru tveir sýslumenn og fyrrverandi lögreglustjóri en þetta kemur fram í frétt á vef Stjórnarráðsins. Embættið var auglýst laust til umsóknar 27. mars og var umsóknarfrestur til 14. apríl en var síðan framlengdur til 21. apríl.
Meira